Statoil veldur vonbrigðum, hlutabréf falla í verði 9. febrúar 2011 10:19
Uppgjör norska olíurisans Statoil fyrir fjórða ársfjórðung á síðasta ári hefur valdið vonbrigðum. Hagnaðurinn var nokkuð undir væntingum fjárfesta og hefur niðurstaðan valdið því að hlutir í félaginu hafa lækkað um 3% í morgun. Sú lækkun leiddi til þess að vísitalan í kauphöllinni í Osló hóf daginn í rauðum lit. Rekstrarhagnaður Statoil á fjórðungnum nam tæpum 41 milljarði norskra kr. eða yfir 800 milljörðum kr. Hinsvegar áttu sérfræðingar von á að hagnaðurinn yrði yfir 43 milljarðar norskra kr. Um er að ræða mun meiri hagnað en á sama tímabili árið áður en þá nam hann 34,3 milljörðum norskra kr. Ástæðan er mun hærra olíuverð. Forráðamenn Statoil reikna með að olíuframleiðsla þeirra í ár verði á pari við síðasta ár. Hinsvegar minnkaði olíuframleiðslan í fyrra miðað við árið 2009. Statoil er því í mikilli þörf á að finna nýjar olíulindir til að halda uppi rekstrarhagnaði sínum.
Mest lesið Ólafur Ingi: „Ég er kostuð eiginkona“ Atvinnulíf Stærðin skiptir ekki máli Atvinnulíf Megi troða „singles day“ upp í greiðslugáttirnar á sér Neytendur Einróma niðurstaða að Hörður sé eins og Kristján í Frozen Atvinnulíf Kílómetragjaldið mögulega fórnarlamb stjórnarslita Neytendur „Reglugerðin tekur gildi hvort sem menn hafa þetta hugrekki eða ekki“ Atvinnulíf Engin endurgreiðsla þrátt fyrir rifbeinsbrot Neytendur Óábyrgt að afskrifa kílómetragjaldið Neytendur Máttu rukka íslenska konu um 1,2 milljónir fyrir dvöl á spítalanum Neytendur Brá sér frá í sauðburð og kvíðinn ferðamaður flúði Neytendur Fleiri fréttir Linkedin sektað um tugi milljarða Samkeppni eykst í Grænlandsflugi Sekta Google um meira en allan pening heimsins Adidas og Ye sættast Bjóða upp á veðmál um leiki barna og styrkja knattspyrnurisa Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? United Airlines hefur flug milli New York og Nuuk Viðskiptavinir gjaldþrota rafmyntakauphallar endurheimta milljarða Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Samið um lok umfangsmikils verkfalls hafnarverkamanna Sjá meira