Körfubolti

Sundsvall hefndi með stórsigri á Norrköping

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hlynur Bæringsson og Jakob Örn Sigurðarson.
Hlynur Bæringsson og Jakob Örn Sigurðarson. Mynd/Valli
Sundsvall Dragons vann 39 stiga sigur á Norrköping Dolphins, 96-57, í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld og hefndu fyrir eins stigs tap í Norrköping í síðustu viku.

Sundsvall vann þarna sinn fjórtánda sigur í síðustu fimmtán leikjum. Liðið er með jafnmörg stig og toppliðið LF Basket en á tvo leiki inni.

Hlynur Bæringsson og Jakob Örn Sigurðarson voru báðir góðir en þjálfari liðsins, Peter Öqvist, gat leyft sér að hvíla þá talsvert í leiknum í kvöld.

Hlynur var með 16 stig og 9 fráköst á 24 mínútum en Jakob skoraði 13 stig, tók 5 fráköst og gaf 6 stoðsendingar á 28 mínútum. Hlynur hitti úr 5 af 7 skotum sínum og öllum fjórum vítunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×