Körfubolti

Helena með átta stig

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir. Mynd/Vilhelm

TCU hefur unnið fyrstu þrjá leiki sína í Mountain West-deildinni í bandaríska háskólaboltanum, nú síðast á Wyoming Cowgirls, 68-47.

Helena Sverrisdóttir spilaði sem fyrr stærstan hluta leiksins í liði TCU og skilaði sínu eins og ávallt. Hún skoraði átta stig, tók sjö fráköst og gaf sex stoðsendingar. Hún stal boltanum þar að auki þrívegis og varði eitt skot.

Helena nýtti þó aðeins fjögur af tólf skotum sínum í leiknum, þar af klikkaði hún á öllum fimm þriggja stiga tilraununum sínum.

Sigurinn var þó auðveldur eins og tölurnar bera með sér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×