Körfubolti

Jakob: Fékk opin skot og hélt bara áfram

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jakob með kærustu sinni, Edith Guðmundsdóttur Hansen, eftir leikinn í gær.
Jakob með kærustu sinni, Edith Guðmundsdóttur Hansen, eftir leikinn í gær. Mynd/Sundsvall Tidning
Jakob Örn Sigurðarson spilaði líklega einhvern besta leik sinn á ferlinum er lið hans, Sundsvall Dragons, varð Svíþjóðarmeistari eftir sigur á Norrköping Dolphins í oddaleik um sænska meistaratitilinn í gær.

Jakob skoraði alls 31 stig í leiknum, þar af 26 í fyrri hálfleik er Sundsvall stakk hreinlega af. Norrköping náði aldrei að ógna forystu Sundsvall að ráði eftir það.

„Ég veit ekki hvað ég á að segja. Það er bara rosalegt að detta í svona stuð í leik sem þessum. Það gerist ekki oft og þetta var í raun bara fáránlegt," sagði Jakob í samtali við Fréttablaðið en samtals setti hann niður sjö þriggja stiga skot í ellefu tilraunum.

„Eftir að ég hitti úr fyrstu tveimur skotunum leið mér rosalega vel í öllu því sem ég gerði. Ég fékk opin skot og hélt bara áfram – að sjálfsögðu."Hann segir að liðið allt hafi spilað vel í gær og því hafi það staðið uppi sem sigurvegari.

„Kaninn okkar, Alex Wesby, er ótrúlegur leikmaður og örugglega einn besti Kani sem ég hef spilað með á ferlinum. Hann er frábær varnarmaður og spilar af hörku allan tímann," sagði Jakob og minntist einnig á landa sinn, Hlyn Bæringsson, sem gekk til liðs við félagið í fyrra en Jakob er á sínu öðru ári.

„Hlynur hefur haft mikil áhrif á liðið. Það sem okkur vantaði í fyrra var maður sem berst fyrir liðið, tekur mikið af fráköstum og skorar mikilvægar körfur. Hann er búinn að breyta miklu og er mjög mikilvægur hlekkur."

Jakob varð Íslandsmeistari með KR árið 2009 og segir alltaf sætt að vinna titla. „Mér líður frábærlega og þetta er alltaf jafn skemmtilegt."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×