Skotsýning fyrir mömmu og pabba Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. nóvember 2011 08:00 Helgi Már Magnússon hafði mest skorað 19 stig í sænsku úrvalsdeildinni fyrir leikinn á föstudaginn var Mynd/Anton
Landsliðsmaðurinn Helgi Már Magnússon setti nýtt og glæsilegt stigamet í 90-81 sigri 08 Stockholm á Uppsala á föstudagskvöld. Það var ekki nóg með að Helgi bætti sitt persónulega met í sænsku deildinni um heil 20 stig heldur tók hann einnig stigamet Íslendings í deildinni af Loga Gunnarssyni. Helgi Már klikkaði á þremur fyrstu skotum sínum í leiknum og var bara kominn með 7 stig í hálfleik. Hann skoraði síðan 32 stig í seinni hálfleiknum og hitti þá úr 11 af 12 skotum sínum utan af velli. „Þetta var einn af þessum dögum sem allt gekk upp. Fyrri hálfleikurinn var allt í lagi en í seinni hálfleik fékk ég nokkur opin skot í byrjun sem ég setti niður og eftir það gekk allt upp,“ sagði Helgi Már. Logi hafði mest skorað 38 stig í sigri Solna á 08 Stockholm fyrir rétt rúmu ári. „Það var með ráðum gert að komast í 39 og upp fyrir Loga,“ sagði Helgi Már í léttum stríðnistóni þegar hann frétti af nýja stigametinu sínu. „Ég held að þetta sé persónulegt met hjá mér og þá skiptir engu máli um hvaða flokk er verið að tala um. Það er alltaf gaman að standa sig á móti sínu gamla liði,“ sagði Helgi Már sem spilaði með Uppsala-liðinu í vetur. „Þetta er ekki eitthvað sem ég geri á hverjum degi að skora 30 og eitthvað stig. Þetta var mjög skemmtilegt. Ég held ég hafi einu sinni náð því að skora 30 stig í háskóla en ég hef aldrei verið þessi spilari. Það er gaman að sjá að maður getur þetta að minnsta kosti,“ segir Helgi. Helgi Már og félagar í 08 Stockholm HR hafa unnið fjóra af fyrstu sjö leikjum sínum og eru eins og er í 6. sætinu. „Við stefnum á að vera í einu af efstu fjórum sætunum og ef við ætlum okkur eitthvað í vetur þá verðum við að geta unnið gott lið eins og Uppsala á okkar heimavelli. Þetta var mjög kærkominn sigur,“ segir Helgi og finnur sig vel með nýja liðinu. „Það gengur ágætlega. Við erum nokkrir að berjast um sömu stöðuna og þjálfarinn er búinn að gefa það út að sá sem stendur sig best fær flestar mínútur í það skiptið. Ég hef verið að byrja mikið á bekknum og uppleggið í þessum leik var bara svipað og er búið að vera í síðustu leikjum,“ segir Helgi Már. Helgi kann vel við uppleggið í liðinu. „Það vill svo skemmtilega til að það er enginn Ameríkani í liðinu. Þetta eru allt bara Svíar og ég. Hingað til höfum við verið lausir við að það sé einhver eigingirni í liðinu og menn eitthvað að hugsa um rassinn á sjálfum sér eða að reyna að ná í góða tölfræði,“ segir Helgi sem er sjálfur mikill liðsmaður og oftar en ekki að gera þá hluti vel sem koma ekki fram í tölfræðinni. Helgi og kærasta hans, Guðrún Sóley Gunnarsdóttir, eignuðust strák 30. september síðastliðinn og voru foreldrar hans í heimsókn í síðustu viku. „Mamma og pabbi voru í stúkunni. Þau voru í heimsókn og náðu þessum eina leik. Þau komu í vikunni til að hitta drenginn og náðu þessum leik. Það gerði þetta aðeins skemmtilegra að hafa þau þarna í stúkunni og svo ég tali ekki um að vera að spila á móti Uppsala,“ segir Helgi. En hvað með framhaldið? „Við skulum vona að þjálfarinn setji eitthvað meira upp fyrir mig í næstu leikjum. Ef þeir vilja setja pressu á að ég skori meiri þá er eins gott að þeir hlaupi fleiri kerfi fyrir mig,“ segir Helgi léttur að lokum.ooj@frettabladid.is
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ Enski boltinn Dagskráin í dag: Formúla 1, Bestu deildirnar, Sveindís Jane og NFL Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Fleiri fréttir Bellingham kallaði dómarann skíthæll Gerðu grín að Mourinho: Sá grenjandi „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Dagskráin í dag: Formúla 1, Bestu deildirnar, Sveindís Jane og NFL McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Norris á ráspól í Singapúr Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sjá meira