Körfubolti

Hlynur og Jakob unnu Íslendingaslaginn gegn Loga

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hlynur var magnaður í kvöld. Mynd/Valli
Hlynur var magnaður í kvöld. Mynd/Valli

Drekarnir fra Sundsvall halda uppteknum hætti og í kvöld lögðu þeir Víkingana frá Solna, 96-82, í sænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik. Þetta var sjötti sigur Sundsvall í röð í deildinni.

Íslendingarnir í liði Sundsvall fóru á kostum eins og venjulega. Jakob Örn Sigurðarson skoraði 19 stig og gaf 4 stoðsendingar. Hlynur Bæringsson skoraði 12 stig, tók 11 fráköst og haf 5 stoðsendingar.

Logi Gunnarsson fann sig ekki í liði Solna en hann skoraði 5 stig og gaf 4 stoðsendingar.

Það gekk ekki vel hjá Helga Má Magnússyni og félögum hans í Uppsala sem máttu þola tap gegn Jamtland, 71-95. Helgi Már skoraði 9 stig, tók 5 fráköst og gaf eina stoðsendingu í leiknum.

Sundsvall er sem fyrr á toppi deildarinnar, Uppsala er í fimmta sæti og Solna í sætinu þar á eftir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×