Körfubolti

Tíu sigurleikir í röð hjá Sundsvall

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hlynur Bæringsson.
Hlynur Bæringsson.

Íslendingaliðið Sundsvall Dragons er hreinlega óstöðvandi í sænska körfuboltanum en liðið vann sinn tíunda leik í röð í kvöld þegar Örebro kom í heimsókn.

Drekarnir miklu betri allan tímann og unnu öruggan sigur, 96-82.

Íslendingarnir sem fyrr sterkir hjá liðinu. Hlynur Bæringsson skoraði 9 stig, tók 10 fráköst og gaf 5 stoðsendingar.

Jakob Örn Sigurðarson skoraði 5 stig, tók 2 fráköst og gaf 7 stoðsendingar.

Sundsvall er eftir leikinn í öðru sæti deildarinnar, tveim stigum á eftir LF Basket en hefur leikið einum leik færra og getur því komist upp að hlið LF Basket á toppi deildarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×