Körfubolti

Brynjar með sjö stig í tapleik

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
MYND/DANÍEL
Brynjar Björnsson og félagar í Jämtland Basket töpuðu þriðja leiknum í röð þegar liðið lá fyrir Uppsala Basket 85-81 í sænsku úrvalsdeildinni í dag. Jämtland er í níunda sæti deildarinnar og minnka líkurnar á á liðið nái í úrslitakeppninna með hverju tapinu.

Brynjar var að venju í byrjunarliði Jämtland og skoraði 7 stig á þeim tæpu 27 mínútum sem hann lék. Hann tók auk þess 2 fráköst og gaf 3 stoðsendingar.. Evaldas Zabas var atkvæðamestur hjá Jämtland með 28 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×