Nýr kani og Haukakonur léku sér að verðandi deildarmeisturum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. mars 2012 20:46 Jence Ann Rhoads Mynd/Hag
Tierny Jenkins átti frábæra innkomu í lið Hauka þegar hún lék sinn fyrsta leik með Haukum í kvöld. Jenkins var með 24 stig og 17 fráköst og 8 stoðsendingar og Haukar unnu öruggan 16 stiga sigur á verðandi deildarmeisturum Keflavíkur, 84-68, en Keflavík hefði tryggt sér sigur í deildinni með því að vinna þennan leik. Haukaliðið gerði út um leikinn með frábærum þriðja leikhluta sem liðið vann 36-19. Jence Ann Rhoads (22 stig, 7 fráköst og 8 stoðsendingar) og Íris Sverrisdóttir (21 stig) áttu líka báðar mjög góðan dag í liði Hauka en Pálína Gunnlaugsdóttir skoraði 22 stig fyrir Keflavík sem lék í kvöld án fyrirliðans Birnu valgarðsdóttur. Keflavíkurstúlkur tóku frumkvæðið í upphafi leiks, komust í 4-1, 7-3 og 15-8 og það munaði fimm stigum á liðunum eftir fyrsta leikhlutann, 17-12 eftir að Haukastúlkur skoruðu síðustu körfu leikhlutans. Haukaliðið skoraði síðan sjö fyrstu stig annars leikhlutans og komst í 19-17. Keflavíkurkonur voru fljótar að taka frumkvæðið á nýjan leik og náði fljótlega sex stiga forskoti. keflavík var síðan 36-32 yfir í hálfleik. Jaleesa Butler og Pálína Gunnlaugsdóttir skoruðu báðar 11 stig fyrir Keflavík í fyrri hálfleiknum en Tierny Jenkins var með 12 stig og 13 fráköst hjá Haukum. Haukaliðið skoraði ellefu fyrstu stig seinni hálfleiksins og var komið í 43-36 eftir aðeins tvær og hálfa mínútu af þriðja leikhlutanum. Haukaliðið skoraði 20 af fyrstu 23 stigum leikhlutans og leiddi að lokum með þrettán stigum, 68-55, fyrir lokaleikhlutann. Haukakonur gáfu ekkert eftir í lokaleikhlutanum og unnu að lokum glæsilegan sextán stiga sigur, 84-68.Haukar-Keflavík 84-68 (12-17, 20-19, 36-19, 16-13)Haukar: Tierny Jenkins 24/17 fráköst/7 stoðsendingar/7 stolnir/3 varin skot, Jence Ann Rhoads 22/7 fráköst/8 stoðsendingar, Íris Sverrisdóttir 21, Margrét Rósa Hálfdanardóttir 5, María Lind Sigurðardóttir 4, Gunnhildur Gunnarsdóttir 4, Guðrún Ósk Ámundardóttir 4/5 fráköst.Keflavík: Pálína Gunnlaugsdóttir 22/4 fráköst, Jaleesa Butler 13/9 fráköst/6 varin skot, Eboni Monique Mangum 12/7 stoðsendingar, Hrund Jóhannsdóttir 10/8 fráköst, Sara Rún Hinriksdóttir 7/7 fráköst, Helga Hallgrímsdóttir 4/5 fráköst.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Enski boltinn Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira