Körfubolti

Derek Fisher laus allra mála hjá Houston | hvaða lið vill fá hann?

Derek Fisher mun ekki leika með Houston Rockets í NBA deildinni.
Derek Fisher mun ekki leika með Houston Rockets í NBA deildinni. AP
Derek Fisher mun ekki leika með Houston Rockets í NBA deildinni en hann var sendur til liðsins á dögunum í leikmannaskiptum. Hinn 37 ára gamli bakvörður var í herbúðum LA Lakers í 13 ár en hann hefur nú komist að samkomulagi við Houston að kaupa upp samning sinn við félagið og getur hann samið við hvaða lið sem er.

Allar líkur eru á því Fisher fari til liðs sem á mögleika á að vinna meistaratitilinn en hann hefur fimm sinnum orðið NBA meistari með LA Lakers á ferlinum.

Fisher lék 537 leiki í röð með Lakers á síðustu 5 árum en hann hafði aðeins skorað rétt um 6 stig að meðaltali á þessari leiktíð sem er það minnsta á hans ferli.

Eflaust eru einhver lið sem vilja fá hinn þaulreynda bakvörð í sínar raðir. Það mun skýrast á næstu dögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×