Körfubolti

Notaði gólfið frekar en spjaldið - ótrúleg karfa 11 ára stráks

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Það er ekki á hverjum degi sem ellefu ára körfuboltastrákur setur niður skot af löngu færi hvað þá þegar hann þarf að skjóta frá miðju vallarins. Ótrúleg karfa ellefu ára stráks frá Grikklandi hefur vakið athygli í netheimum.

Það er ekki aðeins sú staðreynd að strákurinn skaut fyrir aftan miðju sem gerir körfuna eins magnaða og raun ber vitni heldur sú staðreynd að boltinn skoppaði á gólfinu áður en hann fór ofan í körfuna.

Það er líka gaman að sjá að strákurinn var fljótur að átta sig þegar hann sá að leiktíminn var að renna út. Varnarmaður mótherjana gerði honum líka greiða með því að leyfa boltanum að skoppa fyrir framan sig í teignum.

Það má sjá körfuna með því að smella á myndbandið hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×