Golf

Masters 2012: Westwood með eins höggs forskot | Tiger á pari

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Westwood fann sig vel á Augusta-vellinum í dag.
Westwood fann sig vel á Augusta-vellinum í dag. Nordic Photos / Getty
Englendingurinn Lee Westwood spilaði manna best á fyrsta degi Masters-mótsins í golfi á Augusta-vellinum í Georgíuríki í Bandaríkjunum. Westwood lauk leik á fimm höggum undir pari.

Englendingurinn 38 ára kannast ágætlega við tilfinninguna að hafa forystuna á Masters. Hann leiddi fyrir lokadaginn árið 2010 en ótrúleg spilamennska Phil Mickelson á lokahringnum kom í veg fyrir að Westwood landaði sínum fyrsta risatitli.

„Það var hvergi veikan blett að finna í spilamennsku minni. Ég setti boltann nálægt pinna, hitti vel á brautirnar og setti niður nokkur góð pútt," sagði Westwood sem er enn í leit að sigri á sínu fyrsta risamóti.

Ágætis staða hjá Woods þrátt fyrir ógöngur

Tiger Woods lenti í ýmsum ógöngum en tókst þrátt fyrir allt að skila sér í hús á pari.

„Ég átti nokkrar af verstu sveiflum ævi minnar í dag en þetta er allt í lagi," sagði Woods sem hefur unnið 14 stórmót á ævinni, síðast árið 2008.

Norður-Írinn Rory McIlroy sem fataðist heldur betur flugið í kjörstöðu á mótinu á síðasta ári fór hræðilega af stað. Tvöfaldur skolli á fyrstu holu en eftir það birti til. Sigurvegari Opna breska fékk fugla á síðustu tveimur holunum og kom í hús á einu höggi undir pari.

Phil Mickelson spilaði hringinn á tveimur höggum yfir pari. Mickelson fékk meðal annars þrefaldan skolla á 10. holu þar sem hann týndi boltanum.

Oosthuizen og Hanson í öðru sæti

Fast á hæla Westwood koma Suður-Afríkumaðurinn Louis Oosthuizen og Svíinn Peter Hanson. Oosthuizen, besti vinur Charl Schwartzel sem vann mótið í fyrra, fékk fjóra fugla á síðustu fimm holunum og kom sér í góða stöðu.

Svínn Henrik Stenson var á sex höggum undir pari og í frábærri stöðu þegar þrjár holur voru eftir. Hann spilaði lokaholuna hins vegar á heilum fjórum yfir pari og lauk leik á einu höggi undir pari.

Staða efstu manna

1. Lee Westwod -5

2. Louis Oosthuizen, Peter Hanson -4

3. Paul Lawrie, Francesco Molinari, Ben Crane, Jason Dufner og Bubba Watson -3




Fleiri fréttir

Sjá meira


×