Thelma Sif tryggði Selfossi sinn fyrsta sigur í efstu deild Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 22. maí 2012 21:05 Úr leik Selfoss og Vals.
Selfoss lagði FH að velli 2-1 í nýliðaslag í Pepsi-deild kvenna á Selfossvelli í kvöld. Miðjumaðurinn Thelma Sif Kristjánsdóttir skoraði sigurmark heimakvenna mínútu fyrir leikslok. Guðmunda Brynja Óladóttir kom heimakonum yfir á 38. mínútu og þannig stóðu leikar í hálfleik. Aldís Kara Lúðvíksdóttir jafnaði metin fyrir FH á 55. mínútu með sínu þriðja marki í sumar. Aldís Kara skoraði tvívegis í 4-1 sigrinum á ÍBV í síðustu umferð og er markahæst í deildinni með þrjú mörk. Leikar stóðu jafnir þar til mínútu fyrir leikslok. Þá skoraði Thelma Sif Kristjánsdóttir sigurmark Selfoss og tryggði liðinu um leið sinn fyrsta sigur í efstu deild kvenna. Selfoss komst með sigrinum upp að hlið FH í 2.-4. sæti deildarinnar með fjögur stig. Liðin hafa þó leikið leik meira en önnur lið í deidlinni en þrír leikir fara fram í 3. umferð annað kvöld.Klukkan 18.30 Þór/KA - ValurKlukkan 19.15 Afturelding - Fylkir ÍBV - Breiðablik Umferðinni lýkur með viðureign Stjörnunnar og KR í Garðabæ á föstudagskvöldið. Leikurinn er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og einnig í opinni dagskrá hér á Vísi. Upplýsingar um markaskorara frá Urslit.net.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ „Það hlaut að koma að því“ Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Selfoss og KFA mætast í úrslitum „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Uppgjörið og viðtöl: Víkingur - Þróttur 1-1 | Eitt stig á hvort lið í fremur rólegum leik „Ætlum að taka bikarinn norður, það er bara staðan“ „Held að þetta verði mjög erfiður leikur“ Seinna spjaldið var ekki viljandi: „Er bara pirraður og missi hausinn“ Uppgjörið: Afturelding - Fjölnir 3-1 | Brenndu víti en tóku tveggja marka forystu Húbba Búbba kippt af dagskrá: „Það eina sem ég spila í Víkinni er fótbolti“ Eftirsjá Gary Martin: „Mín skoðun, fólk mun ekki vera sammála henni“ Utan vallar: Total-fótboltamaðurinn sem rétti Blikakúrsinn „Ég á Íslandi líf mitt að þakka“ Stúkan: „Sama hvað hann gerir ekki gefa honum gult spjald“ Keflavík í góðri stöðu „Mér finnst að allar þessar krúsídúllur eigi að bíða“ Þóra vonar að Tinna finni sér annað lið: „Kæmi mér á óvart ef það yrði ekki slegist um hana“ Flestir mæta á heimaleiki Blika Sjáðu heimsókn Nabblans á Meistaravelli Svona raðast leikirnir í Bestu deild karla Björn Daníel brattur: „Ætli þetta sé ekki hrörnun vöðvanna sökum aldurs?“ Sjáðu mörkin úr stórsigrum Vals og Víkings Rifjuðu upp þegar Gummi spurði strákana eftir tvær umferðir hvort KR gæti orðið meistari Lárus Orri ekki enn búinn að fyrirgefa Graham Potter: „Hann var svolítið linur“ Rúnar Páll: Fáránlega mikið af mörkum á okkur sem boðar ekki gott Aron: Að það þurfi tæklingu til þess að kveikja á liðinu finnst mér lélegt Sjá meira