Golf

Mickelson komst ekki í gegnum niðurskurðinn

Phil Mickelson.
Phil Mickelson. AP
Phil Mickelson komst ekki í gegnum niðurskurðinn á opna breska meistaramótinu í golfi að loknum öðrum keppnisdegi af alls fjórum. Mickelson, sem hefur sigrað á fjórum stórmótum, lék á 78 höggum og alls var hann á 11 höggum yfir pari eftir 36 höggum.

„Ég veit ekki hvað ég á að segja," sagði Mickelson við fréttamenn eftir hringinn í dag en hann endaði í öðru sæti á þessu móti fyrir ári síðan. „Ég hef ekki leikið vel undanfarna tvo mánuði og ég þarf að bæta margt í mínum leik," sagði hinn 42 ára gamli Mickelson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×