Svartfjallaland lagði Serbíu með flautukörfu frá miðju Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 19. ágúst 2012 10:00
Óvænt úrslit urðu í riðli Íslendinga í undankeppni Evrópumótsins í körfuknattleik í gær þegar Svartfjallaland lagði Serbíu á útivelli. Þá unnu Eistar sigur á Ísrael á útivelli í framlengdum leik. Íslendingar fóru sem kunnugt er frægðarför til Slóvakíu í gær þar sem heimamenn lágu í valnum 81-75. Svartfellingar gerðu ekki síður stormandi lukku gegn grönnum sínum í Serbíu. Serbar settu niður vítaskot og komust yfir 71-70 þegar fjórar sekúndur lifðu leiks. Gestirnir gáfust ekki upp og Nikola Ivanovic skoraði með skoti frá rétt fyrir aftan miðju og tryggði Svartfellingum óvæntan sigur. Körfuna má sjá í spilaranum hér fyrir ofan. Allir leikir gærdagsins unnust á útivelli því Eistar fóru góða ferð til Ísrael og unnu tveggja stiga sigur, 88-86, eftir framlengingu. Sigurinn er einnig óvæntur enda voru Serbar og Ísraelar fyrirfram taldar sterkustu þjóðirnar í riðlinum. Fátt benti líka til annars en að Ísraelar myndu landa öruggum sigri. Liðið hafði 13 stiga forskot að loknum fyrsta leikhluta og einnig í leikhléi. Þá tóku gestirnir við sér, minnkuðu muninn og jöfnuðu metin með þriggja stiga skoti þremur sekúndum fyrir leikslok. Í framlengingunni var allt í járnum en Eistarnir unnu að lokum frækinn tveggja stiga sigur. Það er því ljóst að Ísraelar, sem hafa tapað tveimur fyrstu leikjum sínum, mæta brjálaðir til leiks gegn Íslendingum í Laugardalshöll á þriðjudagskvöldið.Staðan í A-riðli að loknum tveimur leikjum Eistland 4 Svartfjallaland 4 Serbía 2 Ísland 2 Ísrael 0 Slóvakía 0
Körfubolti Tengdar fréttir Jón Arnór sjóðheitur í frábærum sigri í Slóvakíu Íslenska landsliðið í körfuknattleik vann frækinn útisigur, 75-81, gegn Slóvakíu í dag. Þetta var annar leikur liðsins í A-riðli fyrir undankeppni EM. 18. ágúst 2012 17:50 Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira
Jón Arnór sjóðheitur í frábærum sigri í Slóvakíu Íslenska landsliðið í körfuknattleik vann frækinn útisigur, 75-81, gegn Slóvakíu í dag. Þetta var annar leikur liðsins í A-riðli fyrir undankeppni EM. 18. ágúst 2012 17:50