Körfubolti

Peter Öqvist: Elska þetta lið og elska þessa stráka

Mynd/Valli
Samningur landsliðsþjálfarans Peter Öqvist rennur út eftir núverandi undankeppni en hann sjálfur er jákvæður fyrir því að halda áfram í þessu starfi.

Ísland lék sinn síðasta heimaleik í undankeppni EM þegar liðið tapaði fyrir Svartfjallalandi í dag, 101-92, en lokaleikur Íslands verður gegn Eistlandi ytra á þriðjudag.

„Við skulum sjá til hvað gerist. Ég mun fara yfir málin með KKÍ eftir keppnina og ræða framhaldið. Samningurinn er út þetta tímabil og við munum skoða framhaldið eftir undankeppnina."

Spurður hvort hann væri sjálfur áhugasamur um að halda áfram var svarið jákvætt. „Ég elska þetta lið og ég elska þessa stráka. Ég elska fólkið hjá sambandinu og mér líður afskaplega vel á Íslandi. Ég er því alls ekki að loka á neina möguleika."

Umfjöllun og viðtöl sem voru tekin eftir leik í dag má lesa hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×