Lengjubikar kvenna í körfu: Útisigrar hjá Snæfelli, KR og Val Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. september 2012 20:59 Guðbjörg Sverrisdóttir. Mynd/Anton
Snæfell, KR og Valur unnu öll örugga útisigra í Lengjubikar kvenna í körfubolta í kvöld. Snæfell vann Fjölni með 30 stigum í Grafarvogi, KR vann Íslands- og bikarmeistara Njarðvíkur með 11 stigum í Ljónagryfjunni og Valur vann 34 stiga sigur á Hamar í Hveragerði. Öll þessi þrjú lið voru að leika sína fyrstu leiki í keppninni sem hófst um síðustu helgi.Hildur Björg Kjartansdóttir var með 18 stig fyrir Snæfell í 92-62 sigri á Fjölni í Grarfarvogi. Kieraah Marlow gældi við þrennuna með 17 stigum, 18 fráköstum og 7 stoðsendingum og Hildur Sigurðardóttir var með 14 stig og 8 stoðsendingar. Snæfell vann fyrsta leikhlutann 26-7 og var með 21 stigs forskot í hálfleik, 51-30. Porsha Porter var langstigahæst hjá Fjölnir með 26 stig en Fjölniskonur hafa tapað tveimur fyrstu leikjum sínum í keppninni.Helga Einarsdóttir átti stórleik með KR þegar liðið vann 11 stiga sigur á Íslands- og bikarmeistarum Njarðvíkur í Ljónagryfjunni, 68-57. Helga var með 21 stig, 15 fráköst og 5 stolna bolta í leiknum. Björg Guðrún Einarsdóttir skoraði 15 stig í sínum fyrsta leik með KR og Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir var með 13 stig og 11 fráköst í endurkomu sinni í boltann. KR var 27-22 yfir í hálfleik. Sara Dögg Margeirsdóttir skoraði 17 stig fyrir Njarðvík og Eyrún Líf Sigurðardóttir var með 14 stig og 5 stoðsendingar.Íslands- og bikarmeistarar Njarðvíkur hafa því tapað tveimur fyrstu leikjum sínum í Lengjubikarnum en Njarðvíkurliðið hefur misst marga leikmenn úr meistaraliði sínu. Valur vann 34 stiga sigur á Hamar í Hveragerði, 93-59. Guðbjörg Sverrisdóttir var með þrefalda tvennu hjá Val, skoraði 23 stig, tók 13 fráköst og stal 12 boltum. Kristún Sigurjónsdóttir skoraði 18 stig, tók 7 fráköst og gaf 5 stoðsendingar og Unnur Lára Ásgeirsdóttir var með 17 stig. Marín Laufey Davíðsdóttir var atkvæðamest hjá Hamar með 11 stig og 9 fráköst. valur var 19-15 yfir eftir fyrsta leikhlutann og með 12 stiga forskot í hálfleik, 40-28.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Enski boltinn Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira