Golf

Tiger "á bekknum“ í fyrsta sinn á ferlinum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Davis Love þriðji, fyrirliði bandaríska Ryder-liðsins í golfi, tók þá ákvörðun að hvíla Tiger Woods í fyrri keppni dagsins. Það er í fyrsta sinn á ferli Tigers að hann er settur „á bekkinn" í þessari keppni.

Keppt verður í fjórmenningi á fyrri hluta dagsins og munu þeir Tiger og Steve Stricker þurfa að fylgjast með félögum sínum úr fjarska.

Þeir töpuðu báðum sínum viðureignum í gær, fyrst gegn Ian Poulter og Justin Rose í fjórmenningi og svo fyrir þeim Nicolas Colsaerts og Lee Westwood í fjórleik - þrátt fyrir að Tiger hafði náð sjö fuglum á sínum bolta.

„Ég held að Tiger þurfi hvíld og það sama á við um Steve," sagði Love við fjölmiðlamenn eftir að hann tilkynnti keppnisliðin. „Við þurfum á þeim að halda síðar í dag og á morgun."

„Við vildum ekki að neinn kylfingur myndi þurfa að spila fimm viðureignir á þessum velli. Þetta er langur völlur og það yrði erfitt fyrir hvern sem er."

Tiger er nú að keppa í sinni sjöundu Ryder-bikarkeppni en hefur þrátt fyrir sinn glæsilega feril tapað fleiri viðureignum en hann hefur unnið (þrettán sigrar, sextán töp, tvö jafntefli).

Staðan eftir fyrsta keppnisdaginn er 5-3, Bandaríkjunum í vil. Hér eru viðureignir dagsins í fjórmenningi:

Bubba Watson / Webb Simpson (USA) - Justin Rose / Ian Poulter (EVR)

Phil Mickelson / Keegan Bradley (USA) - Lee Westwood / Luke Donald (EVR)

Jason Dufner / Zach Johnson (USA) - Nicolas Colsaerts / Sergio Garcia (EVR)

Jim Furyk / Brandt Snedeker (USA) - Rory McIlroy / Graeme McDowell (EVR)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×