Golf

Axel lék best íslensku kylfinganna á fyrsta hring í Tyrklandi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Axel Bóasson.
Axel Bóasson. Mynd/GVA
Íslenska karlalandsliðið í golfi sem skipað er þeim Axel Bóassyni GK, Haraldi Franklín Magnús GR og Rúnari Arnórssyni GK, hefur leikið fyrsta hringinn af fjórum á Heimsmeistaramóti áhugamanna í golfi sem fram fer í Antalya í Tyrklandi.

Íslenska liðið er sem stendur í 25- 33 sæti af 72 þjóðum. Axel Bóasson lék best íslendingana í dag eða á 69 höggum, sem er 2 undir pari vallarins. Haraldur Franklín Magnús lék á 75 höggum, 4 yfir pari og Rúnar Arnórsson lék á 76 höggum, 5 yfir pari.

Á heimsmeistaramótinu (ensk. World Amateur Team Championships) er leikið um hinn eftirsóttu bikara, Einsenhower Trophy. Núverandi heimsmeistarar er Frakkland, en mótið fór síðast fram í Argentínu 2010.

Heimsmeistaramót áhugamanna, er liðakeppni þar sem hver þjóð sendir þrjá kylfinga til leik. Leiknar eru 72 holur eða fjórir 18 holu hringir og telja tvö bestu skorin eftir hvern hring, alls eru 72 þjóðir til leiks í karlaflokki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×