Handbolti

Berlínarrefirnir aftur á toppinn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Füchse Berlin vann öruggan sigur á Grosswallstadt í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld og endurheimti þar með toppsæti deilarinnar.

Berlínarliðið fékk aðeins sjö mörk á sig í seinni hálfleik og vann að lokum sjö marka sigur, 25-18. Sverre Andreas Jakobsson spilaði að venju í vörn Grosswallstadt, sem er í næstneðsta sæti deildarinnar.

Lærisveinar Dags Sigurðssonar eru með sextán stig eftir níu leiki og með tveggja stiga forystu á Rhein-Neckar Löwen, sem á þó tvo leiki til góða. Kiel er svo í þriðja sæti með ellefu stig en á þrjá leiki til góða á Füchse Berlin.

Hamburg er í fjórða sætinu en liðið vann í kvöld stórsigur á Minden, 34-22. Vignir Svavarsson skoraði fjögur mörk fyrir síðarnefnda liðið en Minden er í ellefta sæti deildarinnar með sjö stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×