Handbolti

Fyrsta tap Paris Handball

Róbert í leik með Paris gegn Montpellier.
Róbert í leik með Paris gegn Montpellier. vísir/afp
Gunnar Steinn Jónsson og félagar hans í Nantes gerðu sér lítið fyrir og skelltu stórliði Paris Handball, 35-36, í deildarbikarnum í kvöld.

Framlengja varð leikinn og þar voru leikmenn Nantes sterkari. Gunnar Steinn skoraði eitt mark fyrir Nantes í leiknum.

Róbert Gunnarsson skoraði þrjú mörk fyrir Paris og Ásgeir Örn Hallgrímsson eitt.

Þetta var fyrsta tap Parísarliðsins eftir að það var tekið yfir af moldríkum eigendum frá Katar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×