Handbolti

Alexander með sjö í sigurleik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Alexander Petersson í leik með Löwen.
Alexander Petersson í leik með Löwen. Nordic Photos / Getty Images
Alexander Petersson skoraði sjö mörk þegar að Rhein-Neckar Löwen vann sigur á Hannover-Burgdorf, 32-26, í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Staðan í hálfleik var 14-10, Löwen í vil, en liðið hefur unnið alla átta leiki sína til þessa á tímabilinu. Þjálfari Löwen er Guðmundur Guðmundsson.

Flensburg, lið Arnórs Atlasonar, gerði jafntefli við spænska liðið Ademar Leon í Meistaradeild Evrópu, 29-29. Arnór skoraði eitt mark í leiknum en Flensburg er í öðru sæti A-riðils með sex stig að loknum fjórum leikjum.

Þá var spilað í dönsku B-deildinni í dag. GOG vann stórsigur á Team Sydhavsöerne, 28-16, en Snorri Steinn Guðjónsson gekk í raðir GOG í haust. Liðið er með fullt hús stig á toppi deildarinnar eftir átta leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×