Handbolti

Fékk koss á kinn og trylltist | Myndband

Það varð allt vitlaust í ítalska handboltanum um daginn. Þá gerðist einn leikmaður svo djarfur að kyssa andstæðinginn sem í kjölfarið gekk af göflunum.

Ivan Stuffer var að pressa Pasquale Maione allhressilega. Sá brá á það ráð að kyssa Stuffer. Það kunni hann ekki meta.

Hann hrinti Pasquale, girti svo niður um sig buxurnar áður en hann djöflaðist í áhorfendum. Algjörlega stórkostleg uppákoma.

Hægt er að sjá hana í spilaranum hér fyrir ofan eða lengri útgáfu með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×