Handbolti

Meistaradeildin: Dagur í eldlínunni - í beinni á Stöð 2 sport

Þýska handboltaliðið Füchse Berlín, sem Dagur Sigurðsson þjálfar, mætir Króatíu Zagreb í Meistaradeild Evrópu í kvöld og verður leikurinn í beinni útsendingu á Stöð 2 sport. Liðin eru í D-riðli þar sem að Barcelona frá Spáni er efst eftir fjórar umferðir með 8 stig. Füchse Berlín er í öðru sæti með 6 stig en þar á eftir kemur króatíska liðið með 3 stig líkt og Dinamo Minsk.

Íslendingaliðið Kiel hefur titil að verja í þessari keppni en Füchse Berlín komst í undanúrslit keppninnar á síðustu leiktíð. Kiel, sem Alfreð Gíslason þjálfar, leikur á laugardaginn á útivelli gegn Celje Lasko í Slóveníu. Kiel er í öðru sæti B-riðils með 6 stig að loknum fjórum leikjum en ungverska liðið Veszprém er í efsta sæti með fullt hús stiga eða 8 stig.

Leikur Füchse Berlín og Króatíu Zagreb hefst kl. 18.25 í kvöld.

Staðan og úrslit leikja í Meistaradeild Evrópu:




Fleiri fréttir

Sjá meira


×