Körfubolti

Pavel slakur í tapleik

Pavel Ermolinskij og félagar í sænska liðinu Norrköping Dolphins lutu í lægra haldi, 51-69, gegn Ventspils í Evrópukeppninni í kvöld.

Þetta var annar sigur Ventspils á Dolphins í deildinni en fyrri leikur liðanna endaði 72-68. Ventspils tryggði sér sæti í 16-liða úrslitum keppninnar með sigrinum. Norrköping er í harðri keppni um annað sæti riðilsins.

Pavel fann sig engan veginn í leiknum. Hann tók fimm skot og hitti úr engu þeirra. Hann tók tvö fráköst og gaf fjórar stoðsendingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×