Handbolti

Fínn útisigur hjá GUIF

Haukur á hér skot að marki.
Haukur á hér skot að marki.
Íslendingaliðið Eskilstuna GUIF styrkti stöðu sína í þriðja sæti sænsku úrvalsdeildarinnar með góðum útisigri í kvöld.

GUIF lagði þá VästeråsIrsta, 22-27, og var með þægilegt forskot nær allan leikinn.

Haukur Andrésson skoraði þrjú mörk fyrir GUIF og Heimir Óli Heimisson tvö. Kristján Andrésson, fyrrum landsliðsmaður, þjálfar lið GUIF.

GUIF er þrem stigum á eftir toppliði Kristianstad.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×