Körfubolti

Jón Arnór og félagar með fjórða sigurinn í röð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson. Mynd/Valli
Jón Arnór Stefánsson og félagar í CAI Zaragoza áttu ekki í miklum vandræðum með FIATC Joventut í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag.

CAI Zaragoza vann 20 stiga heimasigur, 77-57, hefur þar með unnið fjóra leiki í röð og er meðal efstu liða deildarinnar.

Jón Arnór skoraði 8 stig á 21 mínútu í leiknum en hann hitti úr 2 af 4 þriggja stiga skotum sínum og var með 1 frákast og 1 stoðsendingu.

CAI Zaragoza hefur unnið þessa fjóra leiki með samtals 84 stigum eða 21 að meðaltali og það er því ljóst að Jón Arnór og félagar geta gert góða hluti í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×