Körfubolti

Drekarnir á toppinn í Svíþjóð

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hlynur Bæringsson.
Hlynur Bæringsson. Mynd/Valli
Sundsvall Dragons tyllti sér á topp sænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta í kvöld með sigri á Uppsala á útivelli, 82-71.

Drekarnir eru með tveggja stiga forystu á Borås Basket sem tapaði fyrir 08 Stockholm á sama tíma.

Hlynur Bæringsson og Jakob Örn Sigurðarson voru að venju báðir í byrjunarliði Sundsvall í kvöld. Hlynur skoraði fjórtán stig og Jakob tíu.

Hlynur tók þar að auki átta fráköst og gaf fimm stoðsendingar en hann spilaði í tæpar 37 mínútur í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×