Handbolti

Füchse Berlin tapaði í Hvíta-Rússlandi

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Dinamo Minsk skellti lærisveinum Dags Sigurðsson í Füchse Berlin 31-24 í D-riðli Meistaradeildar Evrópu í Hvíta-Rússlandi í dag. Dinamo var 16-15 yfir í hálfleik en leiðir skildu á lokasprettinum.

Füchse Berlin hefur þegar tryggt sér sæti í 16 liða úrslitum en liðið er í öðru sæti riðilsins með 10 stig, fjórum stigum á eftir Barcelona og stigi á undan Dinamo Minks. Pick Szeged er í fjórða sæti með 4 stig.

Sergiy Onufryienko var markhæstur hjá Dinamo með 9 mörk. Vasko Sevaljevic skoraði 5 og Dzmitry Nikulenkau og Dzianis Rutenka með 4 mörk hvor.

Bartlomiej Jaszka skoraði mest fyrir Füchse Berlin eða 6 mörk. Börge Lund skoraði 4 mörk og Colja Löffler 3.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×