Körfubolti

Haukar engin fyrirstaða fyrir ÍR

ÍR-ingar kláruðu sitt verkefni í kvöld.
ÍR-ingar kláruðu sitt verkefni í kvöld.
ÍR komst á auðveldan hátt í átta liða úrslit Powerade-bikarsins í körfubolta í kvöld með öruggum sigri, 78-95, á 1. deildarliði Hauka á Ásvöllum í kvöld.

ÍR-ingar tóku leikinn fastataki í fyrsta leikhluta sem þeir unnu 31-19. Heimamenn girtu sig í brók, komu til baka og leiddu með þrem stigum í hálfleik.

Jafnræða var með liðunum í þriðja leikhluta en fjórði leikhlutinn var eign ÍR-inga sem unnu hann 25-8.

Haukar-ÍR 78-95 (19-31, 26-12, 25-27, 8-25)

Haukar: Haukur Óskarsson 17, Þorsteinn Finnbogason 14/4 fráköst, Emil Barja 12/7 fráköst/8 stoðsendingar, Davíð Páll Hermannsson 12/13 fráköst, Steinar Aronsson 6, Helgi Björn Einarsson 5/4 fráköst/6 stoðsendingar, Andri Freysson 5, Kristinn Marinósson 5, Jóhannes Páll Magnússon 2, Alex Óli Ívarsson 0, Hlynur Viðar Ívarsson 0, Jón Ólafur Magnússon 0.

ÍR: Eric James Palm 34/8 fráköst, Hreggviður Magnússon 17, Isaac Deshon Miles 17/5 fráköst/8 stoðsendingar, Nemanja Sovic 12/4 fráköst, Hjalti Friðriksson 9/7 fráköst, Sveinbjörn Claessen 3, Ellert Arnarson 2, Þorgrímur Emilsson 1, Friðrik Hjálmarsson 0, Vilhjálmur Theodór Jónsson 0, Þorvaldur Hauksson 0, Jón Orri Kristinsson 0.

Dómarar: Björgvin Rúnarsson, Ísak Ernir Kristinsson




Fleiri fréttir

Sjá meira


×