Handbolti

Slæmt tap hjá Wetzlar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kári Kristján í leik með Wetzlar
Kári Kristján í leik með Wetzlar Mynd / Getty Images
Kári Kristján Kristjánsson, Fannar Friðgeirsson og félagar í Wetzlar töpuðu nokkuð óvænt, 32-29, fyrir Balingen í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag.

Wetzlar byrjaði tímabilið frábærlega og hefur verið einskonar spútniklið í deildinni í vetur en þeim hefur ekki gengið alveg sem skildi að undanförnu og eru komnir niður í 8. sæti deildarinnar.

Balingen berst aftur á móti fyrir sæti sínu í deildinni og því var sigurinn frábær fyrir liðið. Fannar Friðgeirsson gerði tvö mörk í leiknum en Kári Kristján eitt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×