Körfubolti

Nýr Kani til Keflavíkur

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd/Keflavik.is
Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur samið við Bandaríkjamanninn Billy Baptist. Frá þessu er greint á heimasíðu Keflavíkurliðsins.

Baptist mun taka stöðu Stephen McDowel sem óskaði eftir því að verða leystur undan samningi við Keflavíkurliðið um miðjan desember. Baptist er 25 ára og hefur meðal annars leiktið með Assignia á Spáni og í þýsku 2. deildinni.

Baptist er 194 cm og getur spilað bæði sem lítill og stór framherji. Hann er væntanlegur til landsins á milli jóla og nýárs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×