Körfubolti

Beðið eftir nothæfum klukkum í Seljaskóla

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
ÍR-ingar kynntu nýtt nafn á heimavelli sínum í haust. Íþróttahúsið í Seljaskóla ber í dag heitið Hertz-hellirinn.
ÍR-ingar kynntu nýtt nafn á heimavelli sínum í haust. Íþróttahúsið í Seljaskóla ber í dag heitið Hertz-hellirinn. Mynd/ÍR
Töf hefur orðið á viðureign ÍR og Keflavíkur í Domino's-deild karla í körfubolta. Leikklukkan í Hertz-hellinum í Seljaskóla í Breiðholti virkar ekki.

Frá þessu er greint á vefmiðlinum Karfan.is en þar kemur fram að klukkan 20.05 hafi leikur ekki enn verið hafinn.

Búið sé að sækja skotklukkur í Austurberg og verið sé að vinna í því að tengja búnað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×