Handbolti

Karen og Hildur úr leik í þýska bikarnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Karen Knútsdóttir
Karen Knútsdóttir Mynd/Stefán
Karen Knútsdóttir, Hildur Þorgeirsdóttir og félagar þeirra í HSG Blomberg-Lippe eru úr leik í þýska bikarkeppninni eftir sjö marka tap á heimavelli á móti Buxtehuder SV í kvöld, 25-32, í átta liða úrslitum keppninnar.

Karen lék með á ný eftir meiðsli og skoraði tvö mörk í leiknum en Hildur var með eitt mark. HSG Blomberg-Lippe var 11-14 undir í hálfleik og Karen náði að minnka muninn í tvö mörk. 23-25, þegar átta mínútur voru eftir af leiknum.

Bæði mörk Karenar komu í seinni hálfleiknum en Hildur náði að jafna í 10-10 þegar tæpar sjö mínútur voru til hálfleiks.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×