Körfubolti

Logi raðaði þristunum með Zorro-grímuna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Logi Gunnarsson öðru nafni Hvíti Zorro.
Logi Gunnarsson öðru nafni Hvíti Zorro. Mynd/Fésbókarsíða Loga
Logi Gunnarsson var stigahæstur hjá Angers BC um helgina þegar liðið vann eins stigs sigur á Blois í frönsku NM1 deildinni í körfubolta. Logi skoraði 18 stig í leiknum þrátt fyrir að hafa nefbrotnað á æfingu á dögunum.

Logi talaði um nefbrotið og Zorro-grímuna á fésbókarsíðu sinni þar sem félagar hans voru fljótir til að kalla hann "Hvíta Zorro".

Logi lét ekki grímuna trufla sig því hann setti niður sex þrista úr tólf tilraunum og var að auki með 4 fráköst og 3 stoðsendingar á 36 mínútum.

Logi hefur skorað 12,5 stig að meðaltali með Angers í vetur en hann hefur sett niður 37,6 prósent þriggja stiga skota sinna og er að skora 2,8 þrista að meðaltali í leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×