Handbolti

Sjöundi sigurinn í röð hjá Þóreyju og Rut

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Rut Jónsdóttir og Þórey Rut Stefánsdóttir.
Rut Jónsdóttir og Þórey Rut Stefánsdóttir. Mynd/Ole NIelsen
Team Tvis Holstebro hélt sigurgöngu sinni áfram í danska kvennahandboltanum í kvöld með því að vinna ellefu marka heimasigur á KIF Vejen, 34-23.

Tvis Holstebro hefur nú unnið sjö síðustu leiki sína í deildinni og komst aftur upp fyrir Viborg HK og í annað sæti deildarinnar.

Tvis Holstebro náði mest sjö marka forskoti í fyrri hálfleik en var fjórum mörkum yfir í hálfleik, 16-12. Sigur liðsins var aldrei í hættu í seinni hálfleiknum.

Landsliðskonurnar Þórey Rósa Stefánsdóttir og Rut Jónsdóttir spila með liði Team Tvis Holstebro. Rut skoraði þrjú mörk í leiknum en Þórey Rósa var með tvö mörk.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×