Körfubolti

Helena og félagar komnar í 1-0

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir
Helena Sverrisdóttir Mynd/Good Angels Kosice
Helena Sverrisdóttir og félagar hennar í slóvakíska liðinu Good Angels Kosice eru komnar í 1-0 á móti spænska liðinu Perfumerias Avenida í sextán liða úrslitum Euroleague kvenna í körfubolta.

Good Angels Kosice vann fyrsta leikinn með fjórtán stigum í Slóvakíu í kvöld, 82-68, og getur tryggt sér sæti í átta liða úrslitakeppninni með sigri í öðrum leiknum sem fer fram á Spáni á föstudaginn.

Helena var ísköld í kvöld og klikkaði á öllum fimm skotum sínum þar af voru fjögur þeirra fyrir utan þriggja stiga línuna. Helena endaði leikinn með 1 stig, 1 fráköst og 1 stoðsendingu á rúmum 13 mínútum.

Bandarísku leikmenn liðsins, bakvörðurinn Alexandria Quigley (21 stig) og framherjinn Plenette Pierson (23 stig), voru atkvæðamestar í leiknum.

Good Angels Kosice vann fyrsta leikhlutann 24-17 og var átta stigum yfir í hálfleik, 43-35. Liðið var síðan komið með 13 stiga forskot fyrir lokaleikhlutann og sigurinn var öruggur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×