Körfubolti

Jón Arnór útaf með fimm villur í útisigri CAI

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson. Mynd/Anton
Jón Arnór Stefánsson og félagar í CAI Zaragoza unnu átta stiga útisigur á Cajasol, 75-67, í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag.

Jón Arnór spilaði í 16 mínútur í leiknum og var með 2 stig og 4 stoðsendingar en hann fór síðan útaf með fimm villur þegar rúmar tvær mínútur voru eftir af leiknum.

CAI Zaragoza liðið endaði með þessu fjögurra leikja taphrinu á útivelli en liðið hafði ekki unnið útileik síðan byrjun desember.

CAI Zaragoza hefur unnið 12 af 21 leik sínum í spænsku deildinni í vetur og í 7. sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×