Handbolti

Þórir Ólafsson og félagar ósigraðir í Meistaradeildinni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þórir Ólafsson í leik með Kielce
Þórir Ólafsson í leik með Kielce Mynd / heimasíða Kielce
Pólska handknattleiksliðið Kielce er gjörsamlega óstöðvandi í Meistaradeild Evrópu en liðið vann frábæran sigur á franska liðinu Chambery 36-32 á heimavelli. Chambery eru franski meistarar og því var sigurinn magnaður.

Kielce hefur því unnið alla níu leiki sína í Meistaradeildinni og eru því á toppnum í sínum riðli, magnaður árangur.

Íslendingurinn Þórir Ólafsson leikur með Kielce en hann gerði tvö mörk í leiknum í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×