Handbolti

Hannes Jón skoraði ellefu mörk

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hannes Jón Jónsson.
Hannes Jón Jónsson.
Hannes Jón Jónsson sýndi allar sínu bestu hliðar í öruggum sigri Eisenach á Saarlouis í þýsku B-deildinni í handbolta í kvöld, 38-24.

Hannes Jón var langmarkahæsti leikmaður Eisenach í leiknum en hann skoraði ellefu mörk, þar af þrjú af vítalínunni.

Hannes Jón, sem er nýkominn aftur af stað eftir að hafa gengist undir krabbameinsmeðferð, skoraði sigurmarkið Eisenach gegn Leipzig í síðustu viku.

Aðalsteinn Eyjólfsson er þjálfari Eisenach sem er í þriðja sæti þýsku B-deildarinnar með 24 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×