Körfubolti

Pavel og félögum mistókst að komast í annað sætið

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Mynd/Valli
Höfrungarnir frá Norrköping sem Pavel Ermolinskij töpuðu á heimavelli fyrir körfuboltaliði Uppsala 78-73 í einvígi liðanna í öðru og þriðja sæti.

Leikurinn var mjög kaflaskiptur. Uppsala var tólf stigum yfir eftir fyrsta leikhluta en en í hálfleik voru Höfrungarnir komnir yfir 39-38.

Uppsala var sterkara í þriðja leikhluta og var átta stigum yfir fyrir fjórða leikhlutann. Þann mun náðu Höfrungarnir aldrei að vinna upp og Uppsala vann að lokum mikilvægan sigur.

Uppsala er í öðru sæti með 40 stig, fjórum stigum á eftir Drekunum frá Sundsvall. Höfrungarnir er með 36 stig í þriðja sæti.

Pavel skoraði 7 stig fyrir Höfrungana og tók 8 fráköst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×