Körfubolti

Haukur Helgi með sjö stig í tapleik | Jón Arnór meiddur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Haukur Helgi í leik með íslenska landsliðinu.
Haukur Helgi í leik með íslenska landsliðinu. Mynd/Valli
Haukur Helgi Pálsson skoraði sjö stig fyrir Manresa þegar liðið tapaði fyrir Joventut, 92-88, í spænsku úrvalsdeildinni í dag.

Haukur Helgi spilaði í tæpar nítján mínútur og tók einnig tvö fráköst í leiknum, auk þess að gefa eina stoðsendingu.

Manresa náði þrettán stiga forystu, 80-67, snemma í fjórða leikhluta en þá skoraði Joventut sextán stig í röð og lét forystuna ekki af hendi eftir það.

Manresa er í næstneðsta sæti deildarinnar með aðeins fjóra sigurleiki til þessa en Joventut er í tíunda sætinu með tíu sigurleiki.

Cai Zaragoza vann fyrr í dag sigur á Valencia, 76-62, en Jón Arnór Stefánsson lék ekki með liðinu vegna meiðsla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×