Handbolti

Eyjastúlkur komnar til Reykjavíkur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Vilhelm
Óvissunni um leiki morgundagsins í undanúrslitum Símabikars kvenna hefur verið eytt því að lið ÍBV kom upp á land með Herjólfi síðdegis.

Erfiðleikar hafa verið í samgöngum til Vestmannaeyja vegna slæms veðurs í vikunni og var um tíma óvíst hvort að lið ÍBV kæmist til Reykjavíkur í tæka tíð.

Liðið mætir Val í undanúrslitum á morgun en allir leikir í undanúrslitum og úrslitum bikarsins, bæði í karla- og kvennaflokki, fara fram í Laugardalshöllinni um helgina.

Lið ÍBV fór ekki með Herjólfi í morgun en hélt af stað nú síðdegis. Liðið átti einnig bókað flug nú síðdegis en ákvað að fara með Herjólfi, eftir því sem kom fram á fréttavef Rúv.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×