Handbolti

Vignir fær nýjan þjálfara

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Ulf Schefvert, þjálfari þýska úrvalsdeildarfélagsins Minden, hefur verið leystur frá störfum. Ekki er ljóst hver tekur við af honum.

Vignir Svavarsson er á mála hjá félaginu en sleit nýverið krossband í hné og verður af þeim sökum frá næstu mánuðina.

Schefvert, sem er sænskur, tók við Minden fyrir þremur árum og kom liðinu upp í þýsku úrvalsdeildina í fyrra. Liðið er í mikilli fallhættu nú og með aðeins ellefu stig eftir 23 leiki. Liðið er í fimmtánda sæti af átján en þrjú neðstu liðin falla í B-deildina.

Minden byrjaði ágætlega í haust en hefur gefið eftir. Liðið tapaði nýverið mikilvægum leikjum gegn Neuhausen og Essen sem eru bæði í hópi þriggja neðstu liða deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×