Handbolti

Ólafur og félagar fengu skell gegn næstneðsta liðinu

Ólafur ásamt Aroni Kristjánssyni landsliðsþjálfara.
Ólafur ásamt Aroni Kristjánssyni landsliðsþjálfara.
Ólafur Guðmundsson og félagar í sænska liðinu Kristianstad voru kjöldregnir, 26-14, af næstneðsta liði sænsku úrvalsdeildarinnar, Aranås.

Ótrúlegir yfirburðir hjá einu slakasta liði deildarinnar sem leiddi í hálfleik, 13-7.

Ólafur fann sig ekki í leiknum frekar en félagar hans og komst íslenski landsliðsmaðurinn ekki á blað í leiknum.

Kristinstad er í fjórða sæti deildarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×