Suzuki SX4 með nýju fjórhjóladrifi Finnur Thorlacius skrifar 28. mars 2013 08:45
Nýr Suzuki SX4, sem hefur verið feykivinsæll bíll hér á landi, var sýndur sem hugmyndabíllinn S-Cross á bílasýningunni í Frakklandi í fyrra. Nýr Suzuki SX4, sem hefur verið feykivinsæll bíll hér á landi, var sýndur sem hugmyndabíllinn S-Cross á bílasýningunni í Frakklandi í fyrra. Nú er hann klár til framleiðslu og var frumsýndur á bílasýningunni í Genf um daginn. Suzuki ætlar sér stóra hluti í hinum vinsæla C-stærðarflokki. Því er nýr SX4 hannaður með það fyrir augum að vera framarlega innan stærðarflokksins bæði hvað varðar innanrými og lítinn útblástur. Bíllinn kemur í sölu í Evrópu í haust. Hann verður boðinn með tveimur gerðum véla, bensínvél og dísilvél með sama 1,6 lítra slagrýminu. Bensínvélin verður boðin með fimm gíra beinskiptingu en dísilbíllinn fær sex gíra beinskiptingu. Þá verður SX4 einnig fáanlegur með CVT sjálfskiptingu. SX4 hefur, eins og nafnið gefur til kynna, drif á öllum hjólum. Aldrifskerfið kallast AllGrip. Það er með fjórum mismunandi stillingum sem ökumaður getur valið um, allt eftir vegaðstæðum hverju sinni og eigin óskum. Nýr SX4 er talsvert stærri en bíllinn sem hann leysir af hólmi. Fyrri gerðin var 4.135 mm á lengd og 1.755 mm á breidd en nýi bíllinn er 4.300 mm á lengd og 1.765 mm á breidd. Þá fer hjólhafið úr 2.500 mm í 2.600 mm sem gerir það að verkum að farangursrýmið eykst úr 270 lítrum í 430 lítra. SX4 verður fáanlegur með glerþaki með tvöfaldri, opnanlegri sóllúgu.
Mest lesið Ein kært nauðgun og fjórar segjast hafa verið beittar ofbeldi Innlent Gummi Emil feginn að ekki fór verr eftir misheppnaðan sveppatúr Innlent Efna til söfnunar fyrir móður Kolfinnu Eldeyjar Innlent Verið að fara fram á rannsókn, ekki þöggun Innlent Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Innlent Manndráp í Kiðjabergi komið til saksóknara Innlent Bíða gagna og tjá sig lítið um rannsóknina á meðan Innlent Rússar gerðir afturreka með óvæntar tillögur á allsherjarþingi SÞ Erlent Fimmti hver myndi helst velja að flytja til Danmerkur Innlent Brotist inn í tvær verslanir sömu nóttina Innlent