Bílar

Verksmiðja Dacia lokar vegna verkfalls

Finnur Thorlacius skrifar
Starfsfólk verksmiðju Dacia lögðu niður störf
Starfsfólk verksmiðju Dacia lögðu niður störf
Vilja 25% hækkun launa.

Renault er vandi á höndum því verkamenn í verskmiðju Dacia í Pitesti í Rúmeníu fóru í verkfall í síðustu viku og stöðvaðist framleiðsla þar fyrir vikið. Dacia er undirmerki Renault og algerlega í þeirra eigu.

Fara verkamennirnir fram á 25% launahækkun, en meðallaun þeirra er nú eru 135.000 krónur á mánuði. Ekki er það nein ofrausn hjá vinnuveitanda þeirra en meðallaun í Rúmeníu eru reyndar aðeins 76.000 kr. Þá segja verkamenn í Dacia að of mikið sé lagt á þá og pressan hjá yfirmönnum sé að sliga marga, en nýr bíll kemur úr í verksmiðjunni í Pitesti á hverjum 40 sekúndum.

Dacia er stærsti útflytjandi í Rúmeníu og stendur að 3% alls útflutnings. Dacia fyrirtækinu gengur vel, þveröfugt við gengi eigandans, Renault. Sala Dacia jókst um 15,4% í síðasta mánuði frá fyrra ári á meðan sala Renault minnkaði um 14,8%. Dacia seldi 360.000 bíla á síðasta ári og jók hana um 5% milli ára. Sá vöxtur verður vafalaust meiri í ár, en þó ekki ef verksmiðja þeirra er lokuð lengi. Um 90% allra Dacia bíla eru seldir utan Rúmeníu.







×