Körfubolti

Helena með fimmtán stig og Englarnir 1-0 yfir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir skoraði fimmtán stig og var í hópi stigahæstu leikmanna Good Angels Kosice þegar liðið vann 104-58 sigur á SKBD Rücon Spisská Nová Ves í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum úrslitakeppninnar í slóvakíska kvennakörfuboltanum.

Helena og félagar þurfa tvo sigra til viðbótar til þess að tryggja sér sæti í úrslitaeinvíginu en liðið vann báða leikina sína í átta liða úrslitunum.

Það hefur verið mikið að gera hjá Good Angels Kosice liðinu að undanförnu enda stelpurnar nýkomnar heim frá Rússlandi þar sem liðið endaði í 4. sæti í Euroleague. Liðið sýnir þó engin þreytumerki í úrslitakeppninni heima fyrir.

Bandaríski bakvörðurinn Allie Quigley var stigahæst í leiknum með 20 stig, ungverski kraftframherjinn Tijana Krivacevic skoraði 16 stig og Lucia Kupcíková var með 15 stig eins og Helena.

Það er hægt að sjá svipmyndir frá leiknum hér fyrir neðan en þar sést Helena meðal annars skella niður einni tandurhreinni þriggja stiga körfu auk þess að gefa tvær stoðsendingar á félaga sína.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×