Handbolti

Óli Stef í sigurliði

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ólafur fékk óblíðar viðtökur hjá varnarmönnum Al-Rayyan.
Ólafur fékk óblíðar viðtökur hjá varnarmönnum Al-Rayyan. Mynd/Heimasíða Lekwiya
Ólafur Stefánsson lék með Lekhwiya þegar liðið sigraði Al-Rayyan 35-27 í katörsku deildinni um helgina.

Lekhwiya hafði yfir 14-12 í hálfleik. Liðið skoraði hins vegar þrjú fyrstu mörk síðari hálfleiks og hélt nokkuð góðu forskoti út leikinn. Þegar uppi var staðið var átta marka sigur í húsi.

Ólafur og félagar eru eftir sigurinn í toppsæti deildarinnar með 8 stig líkt og Gharafa þegar þrjár umferðir eru eftir af mótinu. Liðin tvö mætast á miðvikudagskvöldið í uppgjöri toppliðanna.


Tengdar fréttir

Unnið að kveðjuleik fyrir Óla Stef

"Sú vinna hefur verið í gangi síðan í desember," segir Einar Þorvarðarson framkvæmdastjóri Handknattleikssambands Íslands um kveðjuleik fyrir Ólaf Stefánsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×