Handbolti

Lygi en ekki misskilningur hjá Kára

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Kári Kristján á línunni.
Kári Kristján á línunni. Nordicphotos/AFP
„Hvers vegna giftur tveggja barna faðir fórnar atvinnu sinni og jafnvel lífi til þess að spila landsleik finnst mér óskiljanlegt," segir Björn Seipp framkvæmdarstjóri þýska handknattleiksfélagsins Wetzlar.

Seipp er harðorður í garð Kára Kristjáns Kristjánssonar á vefsíðu félagsins í dag. Þræta þeir fyrir að Kári Kristján hafi nokkurnt tímann fengið leyfi hjá læknum þýska liðsins að spila landsleikina gegn Slóveníu.

„Að Kári hafi fengið grænt ljós hjá læknum liðsins, Marco Ketturkat og Frank Thiel, þess efnis að fá að fara fyrr af sjúkralistanum er einfaldlega lygi. Um engan misskilning hjá læknunum og Kára Kristjáni er að ræða," segir Seipp.

Forráðamenn Wetzlar minna á að Kári hafi gengist undir aðgerð í lok febrúar. Hann hafi svo fengið skýr fyrirmæli um að hann yrði að taka því rólega í að minnsta kosti sex vikur að aðgerðinni lokinni áður en hann myndi hefja æfingar.

„Það er með öllu óskiljanlegt að hann geti spilað landsleiki þegar hann hefur ekki enn hafið æfingar," segir Seipp.

Hann segir að Kári hafi rætt við sig og þjálfarann Kai Wandschneider í marslok að fá að hitta lækna íslenska liðsins í landsleikahlénu. Hann hafi viljað fá álit læknanna um áframhald á endurhæfingu sinni.

„Svo fréttum við í gegnum íslenska fjölmiðla að Kári væri á leiðinni með íslenska landsliðinu til Slóveníu," segir Seipp. Hann fullyrðir að forráðamenn Wetzlar hefðu gripið inn í hefðu þeir haft fregnir af ætlunum Kára fyrr.

Seipp segir ljóst að Kári spili ekki aftur fyrir Wetzlar.

„Riftun samningsins er byggð á staðreyndum og alfarið hegðun leikmannsins að kenna," segir Seipp á heimasíðu Wetzlar.


Tengdar fréttir

Rekinn frá Wetzlar

Þýska úrvalsdeildarfélagið Wetzlar rak landsliðsmanninn Kára Kristján Kristjánsson frá félaginu í gær. Félagið segir Kára hafa gerst sekan um brot á samningi við félagið og þess vegna hafi félagið ákveðið að segja upp samningnum.

Gæti reynst fordæmisgefandi

Kári Kristján Kristjánsson segist hafa spilað með íslenska landsliðinu í góðri trú eftir að hafa fengið leikheimild hjá læknum Wetzlar. Landsliðsþjálfarinn lýsir mikilli óánægju með vinnubrögð forráðamanna Wetzlar.

Kári Kristján spilar í Maribor

Línumaðurinn Kári Kristján Kristjánsson fór í aðgerð vegna góðkynja æxlis í baki fyrir rúmum mánuði síðan. Hann er búinn að jafna sig og mun spila leikinn mikilvæga gegn Slóvenum í undankeppni EM í dag.

Fyrirliði Wetzlar orðlaus

Michael Müller, fyrirliði Wetzlar, lýsir mikilli furðu yfir þeirri ákvörðun Kára Kristjáns Kristjánssonar að spila með íslenska landsliðinu gegn Slóveníu í fyrradag.

Verður Kári rekinn frá Wetzlar?

Þýska dagblaðið Giessener Allgemeine greinir frá því í dag að forráðamenn Wetzlar eru afar óánægðir með að Kári Kristján Kristjánsson hafi spilað með íslenska landsliðinu í gær.

Aron: Óþolandi vinnubrögð hjá Wetzlar

Vísir fylgdist með blaðamannafundi HSÍ í beinni textalýsingu. Tilefnið var leikur Íslands og Slóveníu í Laugardalshöllinni á sunnudag.

Datt næstum því úr sófanum þegar ég sá Kára spila

Wetzlar hefur ákveðið að segja upp samningi sínum við íslenska landsliðslínumanninn Kára Kristjánsson eftir að Kári lék með íslenska landsliðinu í Slóveníu í gær. Félagið vissi ekki betur en að Kári væri í veikindaleyfi heima á Íslandi. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu HSG Wetzlar.

Kári: Ég fékk skýrt já

Kári Kristján Kristjánsson segist hafa fengið skýr svör frá tveimur læknum hjá Wetzlar um að hann mætti spila með íslenska landsliðinu í Slóveníu.

HSÍ vissi ekki að Kári væri skráður á sjúkralista

Handknattleikssamband Íslands og Kári Kristján Kristjánsson sendu nú síðdegis frá sér yfirlýsingu vegna máls Kára. Hann var rekinn frá félagi sínu, Wetzlar, fyrir að hafa spilað landsleikinn gegn Slóveníu síðastliðinn miðvikudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×